Aðalvalmynd

Prófíll

Tenglar

Textareitur

what we do in life.. echoes in eternity

- Gladiator

Innskráningar kubbur

Pínu syfjuð..Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Jæja.. nú er kvöld komið og þreytan farin að gera mann þreyttan...

Föstudagur:

Í gær var Morfís, ME vs. Fs
Við töpuðum en Hafþór var samt í öðru sæti sem ræðumaður kvöldsins.
Síðan fórum við Eyrún og Fanney heim til Sverris þar sem Sonja, Steinar Bragi og Sölvi Snær og síðar kom Andrea.

Síðan var ferðinni heitið í partý til Huldu á Eiðar en þar var gjörsamlega troðið útað dyrum svo við fórum bara og Jóhann Atli kom með og við hringdum í Árna Óla og hann var svo góður að koma og opna fyrir okkur svo ég lúllaði bara uppá vist.

Laugardagur:

í dag var vaknað klukkan svona hálf tólf og gert sig til í ferð í Sænautarsel sem er lengst uppá Jökuldalsheiði. Tilgangurinn með þeirri ferð var að setja upp sýningu um Sjálfstætt fólk sem lesin er í íslensku 503.

okei við lögðum af stað svona hálf 1 vorum komin um 3.

síðan var sett upp tímalínan okkar. Hún var nú bara nokkuð flott. Mesta stemmningin var eiginlega uppá lofti. Hafin var húslestur uppúr sjálfstæðu fólki og fólkið skoðaði tímalínuna.

Um 6 voru allir farnir en við vorum enn þarna þar sem að ófært var fyrir rútuna til baka og þurfti snjóplóg til að koma okkur heim.

á meðan við vorum að bíða eftir rútunni fórum við í leiki eins og hver er maðurinn og hún Stefanía las fyrir okkur draugasögur... og þar sem við fórum ekki heim fyrr en svona hálf 8 þá var tíminn pínu lengi að líða og það var svooooo erfitt að ganga í rútuna þar sem það var svona sirka kílómetri í hana frá Sænautaseli og djúpur snjór og enn sjnókoma, ég er svo þreytt.

En ég verð nú að segja að þetta var eiginlega bara mjög gaman þangað til svona klukkan 6 þar sem að það var alveg komið nóg og allir að deyja úr kuuuuulda.. ég var í 2 hlýrabolum, 1 þunnum langermabol, ME peysunni, 2 íþróttabuxum, 3 sokkum, úlpu, vettlinga og húfu. hélt að ég þyrfti að tína tærnar uppúr skónum mínum þegar ég kæmi uppá vist, hélt þær væru dottnar af.

en já nú er maður kominn uppá vist og svona í hlý þurr föt og svona í tölvunni.. þetta er goooott... vona að þetta blogg hafi verið skemmtilegt og fróðlegt...

               - Nanna

http://www.youtube.com/watch?v=EeyjbqDCIeg þetta myndband er svooo fyndið..

Jaaæja... =)Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Núna er maður kominn í aðeins betra skap, búin að fara í rússneskupróf (held að ég nái því), og fá útúr portfolíó hjá henni Margaret Anne og fékk nú aðeins betri einkunnir en ég bjóst við =D

Síðan var ég aðeins að leita að einhverju í sambandi við mitt yndislega þemaverkefni og rakst á nokkrar myndir sem kætti mig dulítið... og vildi bara deila þessu með ykkur ;)



hahhahahahahahah.... þessi gleður mig mest...



þetta held ég að hafi ekki verið skemmtilegur hjólreiðatúr... en mér finnst hann afturámóti mjög skemmtilegur



ætli þessi sé enn að leita af afgangnum af hjólinu sínu?

Eeeen allavega, þá var hérna bæjarinst bestu mót áðan.. veit ekki alveg hver vann en ef þið getið upplýst mig þá megiði alveg láta mig vita ;)

annars eru kosningar núna, get ekki sagt að ég nenni að horfa en er afturámóti spennt yfir því að komast að því hver vinnur, vona að það verði Obama, finnst McCain ekki meika nógu mikið sens til að verða forseti bandaríkjanna...

Málið að skella sér á dpv á föstudaginn og fara á árshátíðina hjá litlu börnunum, þær fréttir hafa borist mér til eyrna að verið sé að setja upp leiksýninguna Grease. Er rosalega spennt yfir þessu öllu saman.

en já krakkar mínir, held að það sé kominn háttatími ef maður á að nenna að drattast fram úr rúminu sínu á morgun..... stórlega efast það en meiri líkur samt ef ég fer að sofa núna...

Góða nótt ;**

lífið er.....Nanna Margrét Guðmundsdóttir

...Erfitt!!

j
æja.. ekki veit ég nú svosem hvað ég ætti hérna að skrifa en fannst bara vera komin tími á nýtt blogg þar sem ég hef ekki bloggað síðan í sumar einhverntíman...

Lífið hefur nú svona sinn vanagang.. er í Menntaskólanum á Egilsstöðum eins og allir vita. Nema að í þetta sinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum finnst kennurum gaman að drekkja nemendum í heimavinnu.

Hverjum í andskotanum dettur í hug að láta nemendur gera 2000 orða portfolio í ensku  - Margaret Anne Johnson
Hverjum dettur í hug að hafa ekki lotupróf og eitt helvítis uppkast af þemaverkefni í Rússnesku - Ronald Herzer
Hverjum dettur í hug að hafa endalaus próf í þýsku - hver annar en Ronald Herzer
Hverjum dettur í hug að að hafa fimm daga skilafrest á 6-8 bls ritgerð um þema í ljóðabók - Sósu!
Hverjum dettur í hug að hafa eitt stykki heimildaritgerð á tveim vikum - Magnúsi Helgasyni
Hverjum dettur í hug að láta Guðmund Þórarinn Túliníus kenna tossunum stærðfræði - hmm örugglega einvherjum í ME

Svo þetta er allt svo sældarlíf hérna á egs eins og þið sjáið.. EKKI NEITT!!

En djöfull er þessi húsfreyja kraftvangefin stundum.. neinei núna ætlar hún að klaga mig í skólastjóra fyrir að henda fiskibollu í haffa og neita að þrífa það upp.. ekki séns í helvíti.. vil frekar tala við þorbjörn en að þrífa það upp....
úff vá stórglæpur

afhverju er samt svo margt sem fer í taugarnar á manni? Ég hef tekið eftir því að það bara fer eiginlega allt í taugarnar á mér.. get bara ekki að því gert! ég er bara svona!
Eins og að vakna 10 mín í tíma þegar maður hefur óvart snoozað of lengi.
að eyðileggja það sem lokar skottinu á bílnum mínum
þegar netið á vistinni er óþolandi og dettur stanslaust út.. eins og rétt áðan þegar ég var á heimabankanum!!!
þegar það er ógeðslegt rússneskupróf daginn eftir
þegar það er ömurlega leiðinlegt þemaverkefni sem maður þarf að skila uppkasti af sama dag og það er próf
þegar það eru 3 próf á dag
að geta hvergi annarsstaðar verið á egs nema á þessari fjandans vist með þessari elskulegu húsfreyju
þegar maður stendur í 5 fokking klukkutíma við kleinubakstur og fær bara 2 punkta
þegar maður er gjörsamlega að drulla á sig í stærðfræði

já ég held þetta sé komið nóg af biturleika.. látið mig bara vita ef þið vitið vilja meira....Undecided

en já er farin að hengja mig eða eitthvað...
Veriði sæl..


Blaaaahh..Nanna Margrét Guðmundsdóttir

æjj.. ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna, vildi bara ekki vera minni (kvenn)maður en Gummi Helgi...

Allavega þá er maður byrjaður að vinna..
á Hótel Framtíð.. er að þrífa þar... =)
það er fínt =D

æjj ég veit ekkert hvað ég á að segja hérna..

júúú á laugardaginn fékk ég streptakokka (Y) það var alveg geggjað var frá vinnu í 3 daga.. ekki gott. Nýbyrjuð að vinna búin að vera í 5 daga neinei orðin veik =/ þetta hefur aldrei komið fyrir áður. en allavega er að pæla í að fara að sofa

Vá hvað ég hef ekkert....Nanna Margrét Guðmundsdóttir

... um lífið að segja...

Voða lítið gerst hjá mér í þessu blessaða páskafríi.. Eiður bróðir og Kristín systir eru heima.. og krakkarnir þeirra... ásamt mökum..

Mamma og pabbi fóru út á dpv í fermingarveislu til Söndru Sifar.. ég ákvað að vera heima...

Mér langar á ball um páskana.. =) en veit ekki hvort ég fari.. Hver er memm??

Annars eru svona helstu vinir mínir um páskana rollurnar.. er svona helst að hjálpa pabba þar sem gamli er nýkominn úr mjaðmaaðgerð.. finnst eins og ég hafi farið heim í bootcamp.. ahhaa.. nei kannski ekki alveg svoleiðis en samt.. er að pæla í að fá Árna Óla til að leyfa mér að skrá þetta fyrir leikfimina mína þegar ég kem aftur í ME... hehe en já..

læt þetta duga í bili
 bið að heilsa

            - Nanna

Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Udanfarnir dagar hafa farið í að fara til Reykjavíkur, klippingu, sofa, net, skírn, net, sofa, net, kringluna og aftur á Egilsstaði...

Já systir mín var semsagt að skýra sitt annað barn á sunnudaginn, hún hét Alexandra Sveinfríður Margrét Matthíasdóttir. Mamma rosa ánægð með Margrétar nafnið þar sem hún heitir Ragnheiður Margrét en hin amman heitir Sveinfríður.

Á laugardaginn flaug ég suður og brunaði beint með Snjólaugu systur til Grindavíkur í klippingu og stípur hjá Lillý frænku ;) Roooosa fínt =)

Fór i kringluna og hitti mömmu og pabba... síðan var bara flogið heim í gær.. og svo beint á leikfélagsfund... voða lítilfjörlegt líf hér á egs... svo er maður náttúrulega í skólanum... en já ég ætla bara að ljúka þessu hérna...

verið sæl

               - Nanna =D

Brrr...Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Vá hvað mér er kalt.. jesús minn... en já.. tel vera komin tími á blogg ;)

Síðastliðnar tvær vikur hafa svona yfirleitt farið í skóla, handboltaáhorf og leiklistaræfingar, very busy person.. samt ekki...
Allavega þá er búið að casta og ég fæ að vera eðla/böðull/hjartasjúklingur.. hehe voða gaman allt saman.. hlakka til að sjá hvernig þetta leikrit verður í heild sinni..

síðasta vika hefur einnig falið í sér stríð á milli herbergjanna númer 201 og 206.. allt voða gaman fékk yfir mig kristal plús á fimmtudaginn hefndi mín tvöfalt til baka.. haha.. svo faldi ég lyklana þeirra þeim til mikillar ánægju.. en svo varð þetta baaara leiðinlegt..

Svo horfðum við á sjónvarpið.. mikið gert af því.. sofið líka þar sem ekki var farið að sofa á þriðjudaginn fyrr en klukkan 5 um nóttina... allir rosa þreyttir daginn eftir..

í gær var haldið út á djúpavog.. skellti mér á rúntinn með Ranghildi, síðan bættist í hópinn Ásdís og Karen og svo fór Ásdís og í staðin komu Grettir og Aron.. það var mjög fyndið.. en svo fóru allir heim um tólf eftir þriggjatíma rúnt nema ég skutlaði Gretti, Aroni og Guðmundu Báru út í Neistabrekku svo þau gætu farið og rennt sér á sleða.. hehe.. en já svo í dag skúraði ég stofuna og kjallarann! Rosalega dugleg.. ihh...

Auf Wiedersehen ;)

                  - Nanna

Jaaaaaæja...Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Hvað á maður að segja.. skólinn byrjaður aftur og allt heldur áfram sem áður...

er í 18 einingum... öööööööömurleg stundartafla...

er í þessum áföngum =

enska 403
danska 303
franska 303
þýska 103
stærðfræði 122
rússneska 203

vonast til að komast í íslensku... allavega í p... vil ekki vera án íslensku...

en já.. ég er að hlusta á gettu betur.. má ekki vera að þessu

                - Nanna

2007??Nanna Margrét Guðmundsdóttir


það er nú víst komið nýtt ár og er þá ekki kominn tími til að blogga??
ég er ekki góð í að muna hvenær hlutirnir gerðust.. en ég skal samt rifja eitthvað upp ;)

fyrsta sem mér dettur í hug er 100 gangurinn.. þetta var best 105, 106, 102 og 103 allir vinirnir á sama ganginum gleymi aldrei hvað það var gaman..

Súper Maríó... leikrit ME eftir Jónas Reyni.. vá hvað það var virkilega gaman fékk líka 2 einingar.. en búningurinn var ekki alveg að gera sig..ihh.. kynntist fullt af fólki =) man líka alltaf eftir því þegar strákarnir komust að því að konan sem hló svona hátt væri mamma mín.. hahaha...
síðan var auðvitað frumsýningarpartý... vá það var gaman.. en held að ferðin heim hafi verið aðeins skrautlegri...

Menningarferðin á Akureyri...
Föstudagurinn var ekkert smá skemmtilegur.. fórum á Ak með Söndru og Jóa og fórum svo á röltið með dpv stelpunum um kvöldið.. haha svo fóru sumir heim klukkan hálf 1.. Laugardagurinn var líka skemmtilegur.. byrjaði bara með chilli á bílastæðinu.. fólk var orðið kátt og síðan var farið á ball en samt smá drama í gangi þar man ekkert hvað það var... síðan var bara farið heim á sunnudaginn..

Ingvi krotaði á vegginn með varalit og sagði að Benni hefði gert það.. og ég og Vordís helltum vatni á Benna en við náðum aldrei að hefna okkar á Ingva..

Hreppurinn.. þegar þröstur lét mig labba yfir bárujárnið og ég flækti mig í spottanum og féll fram fyrir mig...

þegar við Þröstur og Kristján Ari fórum út á sanda til að sjá hvalrekann...

3 önn... herbergi 311...

Ég og Vordís urðum fastagestir í 304 öllum til mikillar skemmtunar...

gerðum misheppnaða tilraun til að hrekkja Stefán en okkur fannst það samt svo fyndið að við grenjuðum í sjónvarpsholinu í svona 5 mín...
ætluðum að setja vatn í fötu og láta það fara inn þegar hann opnaði en hann stóð inná baði og það tókst ekki...

Ég, Vordís og Stebbi settum tannkrem og beibíolíu á allan 300 ganginn og límband í stigana og lugum svo að Önnu húsfreyju um að við hefðum ekki hugmynd um hver hefði gert þetta..

Óvissuball var frekar skrautlegt er ekkert að fara að segja frá því hér.. Ragnhildur tók margar góðar og geðslegar myndir.. og löggan hringdi heim og klagaði mig.. frááábært..

Pallaball var ekkert smá gaman.. dansaði svo mikið úff en það byrjaði samt á smá fýlu í rútunni á leiðinni.. Lögreglan byrjaði á því þegar komið var úr rútunni að hirða allt áfengi af fólkinu en fann ekki gömlu góðu tópasflöskuna mína sem var á botninum í töskunni minni jafnvel þó helvítis svínið hefði farið og náð í dótið ofaní töskuna mína.. svo við Vordís og Ragnhildur deildum flöskunni.. og ég varð 17 ára á miðnætti og Páll Óskar söng afmælissönginn fyrir mig.. =D =D
ÉG FÉKK BÍLPRÓF!

einvherntímann um nótt gátum við Vordís ekki sofnað svo við fórum í koddaslag klukkan 3 um nótt.. hahah...

Þegar ég, Vordís og Stefán fórum í snjókast klukkan 1 um nótt fyrir framan heimavistina..

en mér dettur ekkert meira í hug..

setning ársins held ég að sé --> mamma þín er skökk í dyrunum (hreppsvinnuhúmor) og Hommadjöfull þarna..

lag--> baby when the lights go out með David Guetta

en já ég nenni þessu ekki lengur.. njótið

Gleðilegt nýtt ár ;*** og hlakka til að hitta alla aftur..

            - Nanna


skólinn búinn...Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Nú eru prófin loksins búin og maður komin heim í jólafrí..

útkoma prófanna var misgóður..

íslenska 303 --> 8
rússneska 103 --> 8
franska --> 203 8
saga --> 103 7
stærðfræði 162 --> 5
enska 303 --> 5 (eeeeeeeekki mér að kenna)

ekki sátt með fimmu í ensku hata Ölmu.. en stærðfræðina er ég sátt með.. náði allavega áfanganum iiiiihhhh =)

Það svona sem hefur drifið á dagana er voða fátt..

Menntaskólakórinn söng með karlakórnum Drífanda 2. des...
8. des kláraði ég prófin og náði öllu eins og fram kom..
kom heim
tók til (voooooða lítið)

Snjólaug systir á afmæli í dag og er nákvæmlega einu ári eldri í dag.. tíhí.. Þögull sem gröfin (þess má geta að ég er 17 og hun er tíu árum eldri en ég sem gerir hana.... uuuu.... 14 (bara fyrir þig Snjólaug ;) ) )

þann 7. des dó frændi minn á Þorgrímsstöðum hann Hlífar Erlingsson bróðir ömmu Sigrúnar.
í dag var jarðarförin þannig að það er ég búin að vera í dag.. þekki ekkert eiginlega af fólkinu í ömmu ætt..
ég hugsa að ég eigi nú eftir að sakna hans þó að ég hafi alltaf verið óþolinmóð og viljað komast í burtu þegar við heimsóttum þau systkinin..

en já... nenni ekki að skrifa meir..

             - Nanna

Síða 1 af 6

Auglýsing

Klukkan

Teljari