Aðalvalmynd

Prófíll

Tenglar

Textareitur

what we do in life.. echoes in eternity

- Gladiator

Innskráningar kubbur

2007??Nanna Margrét Guðmundsdóttir


það er nú víst komið nýtt ár og er þá ekki kominn tími til að blogga??
ég er ekki góð í að muna hvenær hlutirnir gerðust.. en ég skal samt rifja eitthvað upp ;)

fyrsta sem mér dettur í hug er 100 gangurinn.. þetta var best 105, 106, 102 og 103 allir vinirnir á sama ganginum gleymi aldrei hvað það var gaman..

Súper Maríó... leikrit ME eftir Jónas Reyni.. vá hvað það var virkilega gaman fékk líka 2 einingar.. en búningurinn var ekki alveg að gera sig..ihh.. kynntist fullt af fólki =) man líka alltaf eftir því þegar strákarnir komust að því að konan sem hló svona hátt væri mamma mín.. hahaha...
síðan var auðvitað frumsýningarpartý... vá það var gaman.. en held að ferðin heim hafi verið aðeins skrautlegri...

Menningarferðin á Akureyri...
Föstudagurinn var ekkert smá skemmtilegur.. fórum á Ak með Söndru og Jóa og fórum svo á röltið með dpv stelpunum um kvöldið.. haha svo fóru sumir heim klukkan hálf 1.. Laugardagurinn var líka skemmtilegur.. byrjaði bara með chilli á bílastæðinu.. fólk var orðið kátt og síðan var farið á ball en samt smá drama í gangi þar man ekkert hvað það var... síðan var bara farið heim á sunnudaginn..

Ingvi krotaði á vegginn með varalit og sagði að Benni hefði gert það.. og ég og Vordís helltum vatni á Benna en við náðum aldrei að hefna okkar á Ingva..

Hreppurinn.. þegar þröstur lét mig labba yfir bárujárnið og ég flækti mig í spottanum og féll fram fyrir mig...

þegar við Þröstur og Kristján Ari fórum út á sanda til að sjá hvalrekann...

3 önn... herbergi 311...

Ég og Vordís urðum fastagestir í 304 öllum til mikillar skemmtunar...

gerðum misheppnaða tilraun til að hrekkja Stefán en okkur fannst það samt svo fyndið að við grenjuðum í sjónvarpsholinu í svona 5 mín...
ætluðum að setja vatn í fötu og láta það fara inn þegar hann opnaði en hann stóð inná baði og það tókst ekki...

Ég, Vordís og Stebbi settum tannkrem og beibíolíu á allan 300 ganginn og límband í stigana og lugum svo að Önnu húsfreyju um að við hefðum ekki hugmynd um hver hefði gert þetta..

Óvissuball var frekar skrautlegt er ekkert að fara að segja frá því hér.. Ragnhildur tók margar góðar og geðslegar myndir.. og löggan hringdi heim og klagaði mig.. frááábært..

Pallaball var ekkert smá gaman.. dansaði svo mikið úff en það byrjaði samt á smá fýlu í rútunni á leiðinni.. Lögreglan byrjaði á því þegar komið var úr rútunni að hirða allt áfengi af fólkinu en fann ekki gömlu góðu tópasflöskuna mína sem var á botninum í töskunni minni jafnvel þó helvítis svínið hefði farið og náð í dótið ofaní töskuna mína.. svo við Vordís og Ragnhildur deildum flöskunni.. og ég varð 17 ára á miðnætti og Páll Óskar söng afmælissönginn fyrir mig.. =D =D
ÉG FÉKK BÍLPRÓF!

einvherntímann um nótt gátum við Vordís ekki sofnað svo við fórum í koddaslag klukkan 3 um nótt.. hahah...

Þegar ég, Vordís og Stefán fórum í snjókast klukkan 1 um nótt fyrir framan heimavistina..

en mér dettur ekkert meira í hug..

setning ársins held ég að sé --> mamma þín er skökk í dyrunum (hreppsvinnuhúmor) og Hommadjöfull þarna..

lag--> baby when the lights go out með David Guetta

en já ég nenni þessu ekki lengur.. njótið

Gleðilegt nýtt ár ;*** og hlakka til að hitta alla aftur..

            - Nanna


Athugasemdir

1
Stefán skrifar:
Nanna, það varst þú sem helltir baraolíunni á ganginn, við Vordís komum ekkert nálagt því
04. janúar 2008 klukkan 17:27
2
Ragnhildur skrifar:
Get nú ekkert sagt að mig hlakki e-ð beint til að hitta þig aftur eeeeen myndirnar af þér á óvissuballinu eru klassa myndir
05. janúar 2008 klukkan 00:32
3
Vordís skrifar:
haha sammála stefáni, hef ekki hugmynd um hvað þú ert að tala sko! Kom ekkert nálægt þessu..
koddaslagurinn var skemmtilegur hahaha XD
06. janúar 2008 klukkan 01:24
4
Nanna skrifar:
Góður þessi vordís.. en ég viðurkenni að það var bara ég sem var með beibíoilið... (A)
08. janúar 2008 klukkan 10:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari