nanna-margret.bloggar.is
Brrr...Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Vá hvað mér er kalt.. jesús minn... en já.. tel vera komin tími á blogg ;)
Síðastliðnar tvær vikur hafa svona yfirleitt farið í skóla, handboltaáhorf og leiklistaræfingar, very busy person.. samt ekki...
Allavega þá er búið að casta og ég fæ að vera eðla/böðull/hjartasjúklingur.. hehe voða gaman allt saman.. hlakka til að sjá hvernig þetta leikrit verður í heild sinni..
síðasta vika hefur einnig falið í sér stríð á milli herbergjanna númer 201 og 206.. allt voða gaman fékk yfir mig kristal plús á fimmtudaginn hefndi mín tvöfalt til baka.. haha.. svo faldi ég lyklana þeirra þeim til mikillar ánægju.. en svo varð þetta baaara leiðinlegt..
Svo horfðum við á sjónvarpið.. mikið gert af því.. sofið líka þar sem ekki var farið að sofa á þriðjudaginn fyrr en klukkan 5 um nóttina... allir rosa þreyttir daginn eftir..
í gær var haldið út á djúpavog.. skellti mér á rúntinn með Ranghildi, síðan bættist í hópinn Ásdís og Karen og svo fór Ásdís og í staðin komu Grettir og Aron.. það var mjög fyndið.. en svo fóru allir heim um tólf eftir þriggjatíma rúnt nema ég skutlaði Gretti, Aroni og Guðmundu Báru út í Neistabrekku svo þau gætu farið og rennt sér á sleða.. hehe.. en já svo í dag skúraði ég stofuna og kjallarann! Rosalega dugleg.. ihh...
Auf Wiedersehen ;)
- Nanna
