Aðalvalmynd

Prófíll

Tenglar

Textareitur

what we do in life.. echoes in eternity

- Gladiator

Innskráningar kubbur

Pínu syfjuð..Nanna Margrét Guðmundsdóttir

Jæja.. nú er kvöld komið og þreytan farin að gera mann þreyttan...

Föstudagur:

Í gær var Morfís, ME vs. Fs
Við töpuðum en Hafþór var samt í öðru sæti sem ræðumaður kvöldsins.
Síðan fórum við Eyrún og Fanney heim til Sverris þar sem Sonja, Steinar Bragi og Sölvi Snær og síðar kom Andrea.

Síðan var ferðinni heitið í partý til Huldu á Eiðar en þar var gjörsamlega troðið útað dyrum svo við fórum bara og Jóhann Atli kom með og við hringdum í Árna Óla og hann var svo góður að koma og opna fyrir okkur svo ég lúllaði bara uppá vist.

Laugardagur:

í dag var vaknað klukkan svona hálf tólf og gert sig til í ferð í Sænautarsel sem er lengst uppá Jökuldalsheiði. Tilgangurinn með þeirri ferð var að setja upp sýningu um Sjálfstætt fólk sem lesin er í íslensku 503.

okei við lögðum af stað svona hálf 1 vorum komin um 3.

síðan var sett upp tímalínan okkar. Hún var nú bara nokkuð flott. Mesta stemmningin var eiginlega uppá lofti. Hafin var húslestur uppúr sjálfstæðu fólki og fólkið skoðaði tímalínuna.

Um 6 voru allir farnir en við vorum enn þarna þar sem að ófært var fyrir rútuna til baka og þurfti snjóplóg til að koma okkur heim.

á meðan við vorum að bíða eftir rútunni fórum við í leiki eins og hver er maðurinn og hún Stefanía las fyrir okkur draugasögur... og þar sem við fórum ekki heim fyrr en svona hálf 8 þá var tíminn pínu lengi að líða og það var svooooo erfitt að ganga í rútuna þar sem það var svona sirka kílómetri í hana frá Sænautaseli og djúpur snjór og enn sjnókoma, ég er svo þreytt.

En ég verð nú að segja að þetta var eiginlega bara mjög gaman þangað til svona klukkan 6 þar sem að það var alveg komið nóg og allir að deyja úr kuuuuulda.. ég var í 2 hlýrabolum, 1 þunnum langermabol, ME peysunni, 2 íþróttabuxum, 3 sokkum, úlpu, vettlinga og húfu. hélt að ég þyrfti að tína tærnar uppúr skónum mínum þegar ég kæmi uppá vist, hélt þær væru dottnar af.

en já nú er maður kominn uppá vist og svona í hlý þurr föt og svona í tölvunni.. þetta er goooott... vona að þetta blogg hafi verið skemmtilegt og fróðlegt...

               - Nanna

http://www.youtube.com/watch?v=EeyjbqDCIeg þetta myndband er svooo fyndið..

Athugasemdir

1
Ragnhildur skrifar:
mikið rosalega öfunda ég þig af þessari mögnuðu ferð
15. nóvember 2008 klukkan 23:54
2
karen skrifar:
hvernig er svo að eyða hálfum dag með Sósu?
16. nóvember 2008 klukkan 22:10
3
Nanna skrifar:
Hún er ekkert leiðinleg, skil ekki hvað það eru allir að kvarta... mér finnst hún mjög fín, hún er það allavega við okkur í íslensku 503, það þarf náttúrulega að leggja allt aðra áherslu á tossana =D
18. nóvember 2008 klukkan 15:26

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari