nanna-margret.bloggar.is
Pínu syfjuð..Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Jæja.. nú er kvöld komið og þreytan farin að gera mann þreyttan...Föstudagur:
Í gær var Morfís, ME vs. Fs
Við töpuðum en Hafþór var samt í öðru sæti sem ræðumaður kvöldsins.
Síðan fórum við Eyrún og Fanney heim til Sverris þar sem Sonja, Steinar Bragi og Sölvi Snær og síðar kom Andrea.
Síðan var ferðinni heitið í partý til Huldu á Eiðar en þar var gjörsamlega troðið útað dyrum svo við fórum bara og Jóhann Atli kom með og við hringdum í Árna Óla og hann var svo góður að koma og opna fyrir okkur svo ég lúllaði bara uppá vist.
Laugardagur:
í dag var vaknað klukkan svona hálf tólf og gert sig til í ferð í Sænautarsel sem er lengst uppá Jökuldalsheiði. Tilgangurinn með þeirri ferð var að setja upp sýningu um Sjálfstætt fólk sem lesin er í íslensku 503.
okei við lögðum af stað svona hálf 1 vorum komin um 3.
síðan var sett upp tímalínan okkar. Hún var nú bara nokkuð flott. Mesta stemmningin var eiginlega uppá lofti. Hafin var húslestur uppúr sjálfstæðu fólki og fólkið skoðaði tímalínuna.
Um 6 voru allir farnir en við vorum enn þarna þar sem að ófært var fyrir rútuna til baka og þurfti snjóplóg til að koma okkur heim.
á meðan við vorum að bíða eftir rútunni fórum við í leiki eins og hver er maðurinn og hún Stefanía las fyrir okkur draugasögur... og þar sem við fórum ekki heim fyrr en svona hálf 8 þá var tíminn pínu lengi að líða og það var svooooo erfitt að ganga í rútuna þar sem það var svona sirka kílómetri í hana frá Sænautaseli og djúpur snjór og enn sjnókoma, ég er svo þreytt.
En ég verð nú að segja að þetta var eiginlega bara mjög gaman þangað til svona klukkan 6 þar sem að það var alveg komið nóg og allir að deyja úr kuuuuulda.. ég var í 2 hlýrabolum, 1 þunnum langermabol, ME peysunni, 2 íþróttabuxum, 3 sokkum, úlpu, vettlinga og húfu. hélt að ég þyrfti að tína tærnar uppúr skónum mínum þegar ég kæmi uppá vist, hélt þær væru dottnar af.
en já nú er maður kominn uppá vist og svona í hlý þurr föt og svona í tölvunni.. þetta er goooott... vona að þetta blogg hafi verið skemmtilegt og fróðlegt...
- Nanna
http://www.youtube.com/watch?v=EeyjbqDCIeg þetta myndband er svooo fyndið..
Jaaæja... =)Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Núna er maður kominn í aðeins betra skap, búin að fara í rússneskupróf (held að ég nái því), og fá útúr portfolíó hjá henni Margaret Anne og fékk nú aðeins betri einkunnir en ég bjóst við =DSíðan var ég aðeins að leita að einhverju í sambandi við mitt yndislega þemaverkefni og rakst á nokkrar myndir sem kætti mig dulítið... og vildi bara deila þessu með ykkur ;)

hahhahahahahahah.... þessi gleður mig mest...

þetta held ég að hafi ekki verið skemmtilegur hjólreiðatúr... en mér finnst hann afturámóti mjög skemmtilegur

ætli þessi sé enn að leita af afgangnum af hjólinu sínu?
Eeeen allavega, þá var hérna bæjarinst bestu mót áðan.. veit ekki alveg hver vann en ef þið getið upplýst mig þá megiði alveg láta mig vita ;)
annars eru kosningar núna, get ekki sagt að ég nenni að horfa en er afturámóti spennt yfir því að komast að því hver vinnur, vona að það verði Obama, finnst McCain ekki meika nógu mikið sens til að verða forseti bandaríkjanna...
Málið að skella sér á dpv á föstudaginn og fara á árshátíðina hjá litlu börnunum, þær fréttir hafa borist mér til eyrna að verið sé að setja upp leiksýninguna Grease. Er rosalega spennt yfir þessu öllu saman.
en já krakkar mínir, held að það sé kominn háttatími ef maður á að nenna að drattast fram úr rúminu sínu á morgun..... stórlega efast það en meiri líkur samt ef ég fer að sofa núna...
Góða nótt ;**
lífið er.....Nanna Margrét Guðmundsdóttir
...Erfitt!!jæja.. ekki veit ég nú svosem hvað ég ætti hérna að skrifa en fannst bara vera komin tími á nýtt blogg þar sem ég hef ekki bloggað síðan í sumar einhverntíman...
Lífið hefur nú svona sinn vanagang.. er í Menntaskólanum á Egilsstöðum eins og allir vita. Nema að í þetta sinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum finnst kennurum gaman að drekkja nemendum í heimavinnu.
Hverjum í andskotanum dettur í hug að láta nemendur gera 2000 orða portfolio í ensku - Margaret Anne Johnson
Hverjum dettur í hug að hafa ekki lotupróf og eitt helvítis uppkast af þemaverkefni í Rússnesku - Ronald Herzer
Hverjum dettur í hug að hafa endalaus próf í þýsku - hver annar en Ronald Herzer
Hverjum dettur í hug að að hafa fimm daga skilafrest á 6-8 bls ritgerð um þema í ljóðabók - Sósu!
Hverjum dettur í hug að hafa eitt stykki heimildaritgerð á tveim vikum - Magnúsi Helgasyni
Hverjum dettur í hug að láta Guðmund Þórarinn Túliníus kenna tossunum stærðfræði - hmm örugglega einvherjum í ME
Svo þetta er allt svo sældarlíf hérna á egs eins og þið sjáið.. EKKI NEITT!!
En djöfull er þessi húsfreyja kraftvangefin stundum.. neinei núna ætlar hún að klaga mig í skólastjóra fyrir að henda fiskibollu í haffa og neita að þrífa það upp.. ekki séns í helvíti.. vil frekar tala við þorbjörn en að þrífa það upp.... úff vá stórglæpur
afhverju er samt svo margt sem fer í taugarnar á manni? Ég hef tekið eftir því að það bara fer eiginlega allt í taugarnar á mér.. get bara ekki að því gert! ég er bara svona!
Eins og að vakna 10 mín í tíma þegar maður hefur óvart snoozað of lengi.
að eyðileggja það sem lokar skottinu á bílnum mínum
þegar netið á vistinni er óþolandi og dettur stanslaust út.. eins og rétt áðan þegar ég var á heimabankanum!!!
þegar það er ógeðslegt rússneskupróf daginn eftir
þegar það er ömurlega leiðinlegt þemaverkefni sem maður þarf að skila uppkasti af sama dag og það er próf
þegar það eru 3 próf á dag
að geta hvergi annarsstaðar verið á egs nema á þessari fjandans vist með þessari elskulegu húsfreyju
þegar maður stendur í 5 fokking klukkutíma við kleinubakstur og fær bara 2 punkta
þegar maður er gjörsamlega að drulla á sig í stærðfræði
já ég held þetta sé komið nóg af biturleika.. látið mig bara vita ef þið vitið vilja meira....

en já er farin að hengja mig eða eitthvað...
Veriði sæl..
Vá hvað ég hef ekkert....Nanna Margrét Guðmundsdóttir
... um lífið að segja...Voða lítið gerst hjá mér í þessu blessaða páskafríi.. Eiður bróðir og Kristín systir eru heima.. og krakkarnir þeirra... ásamt mökum..
Mamma og pabbi fóru út á dpv í fermingarveislu til Söndru Sifar.. ég ákvað að vera heima...
Mér langar á ball um páskana.. =) en veit ekki hvort ég fari.. Hver er memm??
Annars eru svona helstu vinir mínir um páskana rollurnar.. er svona helst að hjálpa pabba þar sem gamli er nýkominn úr mjaðmaaðgerð.. finnst eins og ég hafi farið heim í bootcamp.. ahhaa.. nei kannski ekki alveg svoleiðis en samt.. er að pæla í að fá Árna Óla til að leyfa mér að skrá þetta fyrir leikfimina mína þegar ég kem aftur í ME... hehe en já..
læt þetta duga í bili
bið að heilsa
- Nanna
2007??Nanna Margrét Guðmundsdóttir
það er nú víst komið nýtt ár og er þá ekki kominn tími til að blogga??
ég er ekki góð í að muna hvenær hlutirnir gerðust.. en ég skal samt rifja eitthvað upp ;)
fyrsta sem mér dettur í hug er 100 gangurinn.. þetta var best 105, 106, 102 og 103 allir vinirnir á sama ganginum gleymi aldrei hvað það var gaman..
Súper Maríó... leikrit ME eftir Jónas Reyni.. vá hvað það var virkilega gaman fékk líka 2 einingar.. en búningurinn var ekki alveg að gera sig..ihh.. kynntist fullt af fólki =) man líka alltaf eftir því þegar strákarnir komust að því að konan sem hló svona hátt væri mamma mín.. hahaha...
síðan var auðvitað frumsýningarpartý... vá það var gaman.. en held að ferðin heim hafi verið aðeins skrautlegri...
Menningarferðin á Akureyri...
Föstudagurinn var ekkert smá skemmtilegur.. fórum á Ak með Söndru og Jóa og fórum svo á röltið með dpv stelpunum um kvöldið.. haha svo fóru sumir heim klukkan hálf 1.. Laugardagurinn var líka skemmtilegur.. byrjaði bara með chilli á bílastæðinu.. fólk var orðið kátt og síðan var farið á ball en samt smá drama í gangi þar man ekkert hvað það var... síðan var bara farið heim á sunnudaginn..
Ingvi krotaði á vegginn með varalit og sagði að Benni hefði gert það.. og ég og Vordís helltum vatni á Benna en við náðum aldrei að hefna okkar á Ingva..
Hreppurinn.. þegar þröstur lét mig labba yfir bárujárnið og ég flækti mig í spottanum og féll fram fyrir mig...
þegar við Þröstur og Kristján Ari fórum út á sanda til að sjá hvalrekann...
3 önn... herbergi 311...
Ég og Vordís urðum fastagestir í 304 öllum til mikillar skemmtunar...
gerðum misheppnaða tilraun til að hrekkja Stefán en okkur fannst það samt svo fyndið að við grenjuðum í sjónvarpsholinu í svona 5 mín...
ætluðum að setja vatn í fötu og láta það fara inn þegar hann opnaði en hann stóð inná baði og það tókst ekki...
Ég, Vordís og Stebbi settum tannkrem og beibíolíu á allan 300 ganginn og límband í stigana og lugum svo að Önnu húsfreyju um að við hefðum ekki hugmynd um hver hefði gert þetta..
Óvissuball var frekar skrautlegt er ekkert að fara að segja frá því hér.. Ragnhildur tók margar góðar og geðslegar myndir.. og löggan hringdi heim og klagaði mig.. frááábært..
Pallaball var ekkert smá gaman.. dansaði svo mikið úff en það byrjaði samt á smá fýlu í rútunni á leiðinni.. Lögreglan byrjaði á því þegar komið var úr rútunni að hirða allt áfengi af fólkinu en fann ekki gömlu góðu tópasflöskuna mína sem var á botninum í töskunni minni jafnvel þó helvítis svínið hefði farið og náð í dótið ofaní töskuna mína.. svo við Vordís og Ragnhildur deildum flöskunni.. og ég varð 17 ára á miðnætti og Páll Óskar söng afmælissönginn fyrir mig.. =D =D
ÉG FÉKK BÍLPRÓF!
einvherntímann um nótt gátum við Vordís ekki sofnað svo við fórum í koddaslag klukkan 3 um nótt.. hahah...
Þegar ég, Vordís og Stefán fórum í snjókast klukkan 1 um nótt fyrir framan heimavistina..
en mér dettur ekkert meira í hug..
setning ársins held ég að sé --> mamma þín er skökk í dyrunum (hreppsvinnuhúmor) og Hommadjöfull þarna..
lag--> baby when the lights go out með David Guetta
en já ég nenni þessu ekki lengur.. njótið
Gleðilegt nýtt ár ;*** og hlakka til að hitta alla aftur..
- Nanna
skólinn búinn...Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Nú eru prófin loksins búin og maður komin heim í jólafrí..
útkoma prófanna var misgóður..
íslenska 303 --> 8
rússneska 103 --> 8
franska --> 203 8
saga --> 103 7
stærðfræði 162 --> 5
enska 303 --> 5 (eeeeeeeekki mér að kenna)
ekki sátt með fimmu í ensku hata Ölmu.. en stærðfræðina er ég sátt með.. náði allavega áfanganum iiiiihhhh =)
Það svona sem hefur drifið á dagana er voða fátt..
Menntaskólakórinn söng með karlakórnum Drífanda 2. des...
8. des kláraði ég prófin og náði öllu eins og fram kom..
kom heim
tók til (voooooða lítið)
Snjólaug systir á afmæli í dag og er nákvæmlega einu ári eldri í dag.. tíhí..
(þess má geta að ég er 17 og hun er tíu árum eldri en ég sem gerir hana.... uuuu.... 14 (bara fyrir þig Snjólaug ;) ) )
þann 7. des dó frændi minn á Þorgrímsstöðum hann Hlífar Erlingsson bróðir ömmu Sigrúnar.
í dag var jarðarförin þannig að það er ég búin að vera í dag.. þekki ekkert eiginlega af fólkinu í ömmu ætt..
ég hugsa að ég eigi nú eftir að sakna hans þó að ég hafi alltaf verið óþolinmóð og viljað komast í burtu þegar við heimsóttum þau systkinin..
en já... nenni ekki að skrifa meir..
- Nanna
Kleppur næstu önn eða?Nanna Margrét Guðmundsdóttir
PRÓF Á MORGUN!! aaaaa... í hvert sinn sem ég heyri þetta orð hverfur allur metnaður í burt... en ég trúi að þetta verði í lagi.. =)skólinn búinn 8. des.. mikið agalega verð ég fegin
Langar svo að fara heim.. en þori að veðja að eftir viku verð ég komin með alveg nóg og vilji fara aftur í skólann! =S.. en ég trúi því að þetta verði nú aðeins skárra núna fyrst maður er komin með bílpróf og getur aðeins haft samband við umheiminn ef mútta mín treystir mér fyrir bílnum sínum (A)..
Hef voða lítið að segja, ég fer í 7 próf þannig að það verður allt brjálað að gera í lærdómi og veseni..
fyrsta prófið íþr 201, svo leiðinlegt.
En allavega á sunnudaginn eru tónleikar í Egilsstaðakirkju þar sem karlakórinn og skólakórinn munu syngja =) ég er ein af þeim.. annars væri ég örugglega ekki að skrifa þetta hérna.. allir að drífa sig á þá.. man ekki alveg hvenær þeir byrja.. =S en þið finnið það bara út. .
en held ég sé nú bara farin að sofa núna..
Góða nótt
- Nanna
Период кровотечения шлю&Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Jæja.. þá er maður komin heim.. og kominn er 16. nóv sem þýðir....
1. Des eftir viku =)
Fyllerí eftir viku =)
Skemmtun eftir viku =)
úff vá hvað mig hlakkar til...
en já í dag voru söngprufur hjá Halldóru Malín fyrir leikritið sem verður sett upp á næstu önn...
já ég söng.. en ég veit ekki hvernig mér gekk ágætlega held ég en ég held að ég hafi gjörsamlega klúðrað seinna laginu.. =s =s... langar ekki að lenda aftur í eins hlutverki og í Súper Maríó.. +o(
Eeeeen já.. ég veit ekkert hvað ég á að segja.. nenni ekki að blogga meeeir...
Verð að segja að ástandið á manni er ruglandi sko... allt er svo flókið.. æjj ég er hætt að væla.. ^^
- Nanna
ERTU EKKI AÐ GRÍNAST!Nanna Margrét Guðmundsdóttir
Ég er orðin hundleið á þessari andsko........... enskukennara...hún leggur mig í einelti..
ég kom í tíma með tölvuna mína i gær.. var að læra og hún gaf mér samt fjarvist!
svo í dag kom ég aftur með tölvuna mína.. ég var að læra ég meira að segja opnaði bókina mína og hún bara eitthvað...
Nanna how many times do I have to tell you to shut down your laptop?!
og ég ætlaði ekkert að slökkva á tölvunni minni því ég var ekkert að gera af mér og hún eitthvað I'll give you an "F" again
og ég bara okei þá!
og þá sagði hún: You can shoot me if you want!
Þessi manneskja er ekki heil á geði! hún hlýtur að vera eitthvað þunglynd sko... en allavega.. vildi bara deila þessari vitleysu með ykkur..
ég fór í bóklega bílprófið á föstudaginn og ég náði því með glæsibrag =)... með 1 og 4 villur..
nenni ekki að tala meira við ykkur í bili! ;)
- Nanna
Valaskjálf...Nanna Margrét Guðmundsdóttir
jaaaæja.. þessi helgi er búin að vera ágæt svosem...Föstudagur: ég gerði ekki neitt og Vordís og Gummi sváfu í faðmlögum hérna inni í 311.. verð að segja að maður var farin að vera svolítið öfundsjúkur sko... NIIII... ég komst ekki í mitt rúm þar sem að Vordís tók næstum tvö rúm EIN!..
Svo klukkan tíu fórum við á Reyðarfjörð í bíó á myndina Knocked up! fórum með Gumma og Stefáni... ágætis mynd..
fórum svo á rúntinn með Antoni, Stefáni og Höllu til svona 3-4.. það var fínt... voða gaman að keyra í hringi...
síðan horfðum við á Pan's Labyrinth og ég sofnaði..
Laugardagur:
Vöknuðum kl hálf þrjú.. gerðum nákvæmlega ekki neitt til svona hálf átta fórum þá að taka okkur til og fórum Svo til Ragnhildar, Karenar og Fríðu yfir í Fellabæ... þar var byrjað að drekka... fórum í drykkjuleik sem hafði þau áhrif að sumir urðu allt of fljótt fullir...
síðan var farið á ball.. Karen hjálpaði mér inn :*:* þakka þér kærlega fyrir Karen
síðan var ég yfirleitt að fela mig fyrir Nonna og Tedda svo þeir myndu nú ekki reka mig út.. en allavega.. tókst mér að vera inni til svona hálf þrjú.. tilgangur í að reka mig út?
een sumir voru orðnir svoldið pirraðir.. (A)
HELGI ÓMAR LÆSTI VISTINNI Í NÓTT ÞANNIG AÐ ALLIR ÞURFTU AÐ REDDA SÉR GISTINGU ANNARSSTAÐAR... DJÖFULL VARÐ ÉG PIRRUÐ!! Allt Ævari og Konna að kenna þeir voru að hleypa utanvistarbúum inná vistina... Gjörsamlega kengfatlaðir!! heimsku Reyðfirðingar... oooooooo!
En samt hvað var Helgi Ómar að pæla.. hann átti bara að taka lykilinn þeirra og leyfa öðrum að komast inná vistina... hann gat alveg hugsað um hina sem þurftu að sofa á vistinni og höfðu ekki neinn annan stað til að sofa á =@
Eeeen þetta reddaðist.. ég gisti(drapst!) í rúminu hennar Fríðu Margrétar á meðan hún svaf í stofunni í svefnsófanum hjá Ragnhildi..
eeen henni var alveg sama.. =)
Svo var bara vaknað og farið á Búlluna og fengið sér að borða.. en allavega nenni ég ekki að skrifa meira..
- Nanna
